1. |
Heltekinn
06:22
|
|||
Heilsar höfðinginn mér
Eða er mér að dreyma?
Blóðugur fálkinn nú fer
Er það mér að kenna?
Nú ferð þú að sofa
Þú andsetna vofa
Nú ferð þú að sofa
Nú ferð þú út
Farðu burt óði andi
Nú þarf ég að vakna
Ég grefst undir sandi
Þín ég mun ekki sakna
|
||||
2. |
Lægð
05:52
|
|||
Get ekki sofið
Vindarnir blása í mér
Stormur í huga mínum
Allt er týnt, týnt og gleymt
Kolniðamyrkur
Svartnættið tekur við
Stingur inn að beini
Kuldahrím, vindur hvín
Kalið grey í leyni
Kuldahrím, vindur hvín
Kolniðamyrkur
Svört þoka sýkir allt
Get ekki vaknað
Svartnættið tekur við
Óreiða ríkir
Umlykur mína sál
|
||||
3. |
Djöfullinn sjálfur
04:30
|
|||
Hverfur sólin
Á bakvið skuggann á mér
Rauður slóði
Minn eilífi fylgdarsveinn
Gnæfi yfir
Innset ótta í fólk
Kominn tími
Lífið runnið sitt skeið
Ég drekk þig í mig
Svala þorstanum um sinn
Ég drekk þig í mig
Svala þorstanum um sinn
|
||||
4. |
Tvífarinn
06:48
|
|||
Spegill, spegill, herm þú mér
Hvað er að ske?
Hví ertu brotin endurgerð af mér?
Brotna ímynd, ert þú ég?
Í þúsund molum, spegilmynd af sjálfum mér
Drunur skjálftans brutu þig
Ef límdur saman, aldrei samur er
Bíum bíum bambaló
Hvað hefur þú að segja?
Ég fæ, ég fæ ekki nóg sannleikann að teygja
Brotna ímynd, ert þú ég?
Í þúsund molum, spegilmynd af sjálfum mér
Inn í eldinn
Inn í eldinn
|
||||
5. |
Mér líður svo illa
06:25
|
|||
Leggst á bakið, missi allan mátt
Rýni á stjörnur en tek engan þátt
Sótsvartur máni, fel mig á bakvið þig
Þar sem sólin aldrei skín
Mér líður svo illa
Mér líður svo illa
|
||||
6. |
||||
Söngur fuglanna ómar hátt
Skín í vatnið þurra
Leikur litla laufið grátt
Og tréð fer að urra
Skugginn grípur mig
Dregur ei dul á það
Að tunglskinið færist nær
Undir rís kristaltært
Snákarnir dvelja, strákarnir kvelja
Snákarnir dvelja, strákarnir kvelja
Heyrast hlátrasköllin há
Og kaffæra Cher
Nærast fjendur mínir á
Að spilla mér?
|
||||
7. |
Móðan mikla
05:25
|
|||
Er neyðin á mannsbarnið kallar
Verða hjörtun svo tárvot og smá
Í dalsmynni vonar og ótta
Er laufblöðin visna og þrá
Ferðalag lífsins hér endar
Fellur í gleymskunnar dá
Brosið sem fékk þig til að elska
Högg á vatni ei sá
Komdu með
Komdu með
Komdu með
Komdu með
|
||||
8. |
Andlitið auða
06:39
|
|||
Andlitið auða
Aldrei segir neitt
Ansar mér aldrei
Agndofa horfi ég
Sótsvarta syndaflóð
Staðalímynd mín
Sleggjudómari
Syndaflæðari
Glerþunna gluggafés
Gefur mér illt auga
Grefur undan mér
Gengur alltaf á eftir mér
Lætur mig líta út
Lítinn og auman
Logandi ljótleiki
Lýsir mér illa
Ég sé
|
||||
9. |
Glötun
06:08
|
|||
Ég geng dag og nótt
Hef gengið allt of langt frá mér
Það gengur illa að finna það
Sem ég er
Hef löngum leitað að
Hvers vegna maður glatar sér
Ég leita af mér allan grun
Hvernig fer?
Með glötun finnur þú
Hversu lítils virði þú ert
Í eigin hugarheimi
Týndur að eilífu
Ég geng dag og nótt
Ég geng dag og nótt
Ég geng dag og nótt
Ég geng dag og nótt
|
||||
10. |
Vonleysa
06:27
|
|||
Fallinn niður í dýflissu jarðar
Lamaður að innan
Rokið drepur
Élið étur
Þú hverfur mér úr sjón
Ég mun ekki gefast upp
Veður versnar
Verður mér um megn
Get ekki gefist upp
Ég gref mig út
Rokið drepur, élið étur
Lamaður að innan
|
Streaming and Download help
If you like Vögel, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp